Handbolti - Völsungur steinlá.

11.nóv.2008  10:35
ÍBV stelpurnar í mfl,. kvenna unnu sannfærandi sigur á Völsungi frá Húsavík s.l. laugardag, er liðin mættust í fyrsta leik félaganna í 2. deild kvenna. Það var aðeins í byrjun, sem norðanstelpur af umráðasvæði Bergs Elíasar Ágústssonar stóðu í Eyjapæjum. ÍBV spilaði fantavörn með mjög góðri markvörslu, þannig fengu þær fjölmörg hraðaupphlaup og hreinlega keyrðu andstæðingana á kaf um miðjan fyrri hálfleik.Staðan var 21-6 í hléi, síðari hálfleikur var á léttum nótum. Leikur ÍBV lofar góðu undir stjórn Björns Elíassonar, Húsavíkurstelpur eiga nokkuð í land enn, það er hins vegar ágæt hefð fyrir handbolta þar fyrir norðan. Leikurinn endaði með stórsigri ÍBV 37-17.