Handbolti - Völsungur í heimsókn um helgina.

06.nóv.2008  09:17
ÍBV kvennalið í handbolta þreytir frumraun sína um helgina. Leikurinn er fyrsti leikurinn í 2. deild kvenna á þessu keppnistímabili. Það verður fróðlegt að fylgjast með liðinu í vetur undir stjórn Björns Elíassonar. Liðið er skiðað nokkrum reyndum leikmönnum á borð við Þórsteinu Sigurbjörnsdóttur, Anitu Eyþórsdóttur og Birnu Þórsdóttur. Nokkrir aðrir eldri leikmenn hafa einnig tekið fram skóna, auk þess sem yngri bráðefnilegar stelpur leika með liðinu. Hvetjum Eyjamenn til að styðja stelpurnar með því að mæta á leiki þeirra í vetur. Eins og hjá körlunum eru eingöngu Eyjastelpur í liðinu í ár.