Fótbolti - Þórhildur Ólafsdóttir til Crystal Palace

31.okt.2008  10:22
Hin stórefnilega unglingalandsliðskona Þórhildur Ólafsdóttir var i gær lánuð frá IBV til enska 1.deildar liðsins Crystal Palace. Þórhildur mun leika með liðinu fram að jólum en þá snýr hún aftur á heimalsóðir. Umgjörð í kringum Palace liðið er með þeim betri á Englandi og hefur liðið boðið forráðamönnum kvennaknattspyrnunar að koma til London til að kynna sér aðstæður þar með samvinnu liðanna í huga.