Handbolti - Liðið fraus á endasprettinum

27.okt.2008  20:55
ÍBV lék gegn Haukum b síðastliðinn sunnudag. Enn vantaði lykilmenn í liðið, en Sindri Haralds var veikur og Daði Páls var staddur erlendis. Leikurinn var sveiflukendur. Haukar voru yfir 17-15 í hálfleik og voru þremur mörkum yfir þegar tuttugu mínútur voru eftir. Þá tóku okkar menn á sprett og skoruðu hvert markið á fætur öðru og náðu góðri forystu. Vorum við þremur mörkum yfir þegar sjö mínútur voru eftir, en þá fraus allt og við skoruðum ekki mark það sem eftir lifði leiks. Haukar hins vegar skoruðu sex og unnu 31-28.