Handbolti - Frábært hjá 6 flokki

22.okt.2008  19:29

6.flokkur drengja og stúlkna léku í fyrsta fjölliðamóti vetrarins um síðustu helgi. Árangur var mjög góður, en A og B lið stúlkna og A og C lið drengja náðu öðru sæti. Alls eru fimm mót yfir veturinn og fá liðin stig eftir hvert mót og það lið sem flest stig fær stendur uppi sem Íslandsmeistarar. Þjálfari strákana er Unnur Sigmars, og Ólöf Heiða þjálfar stelpurnar.