Fótbolti - Þrjár stúlkur valdar til Ísraels með U-19

15.sep.2008  20:39

Þær Þórhildur Ólafsdóttir,Kristín Erna Sigurlásdóttir og Saga Huld Helgadóttir voru í dag valdar í lokahóp U-19 landsliðsins sem fer til Ísraels og leikur þar í evrópukeppninni. Með Íslandi í riðli eru ásamt heimastúlkum lið Grikklands og Írlands. Stúlkurnar fara til æfinga á fimmtudag og til Ísraels á sunnudag. Tvö efstu lið riðilsins leika í milliriðlum sem leiknir verða í Apríl á næsta ári.