Fótbolti - Úrslitaleikur í dag hjá 2.flokki kvenna

08.sep.2008  10:07
Í dag, mánudag, tekur 2.flokks lið ÍBV á móti Valsstúlkum. Hefst leikurinn kl. 17.00 á Helgafellsvellinum. Er þetta algjör úrslitaleikur fyrir eyjastúlkur því beri þær sigur úr býtum verða þær Íslandsmeistarar. Fyrri leikur liðanna endaði með sigri ÍBV 4-2 og eiga þær því góða möguleika í dag. Mætum öll á völlinn og styðjum okkar stelpur.