Fótbolti - ÍBV - Þór Ak. í kvöld kl. 20.00

24.júl.2008  18:30
ÍBV mætir Þór Akureyri í kvöld kl. 20.00. Lengi vel var tvísýnt hvort leikurinn yrði en ófært hefur verið megnið úr deginum. En bæði liðið og dómararnir eru nú lentir í Eyjum og ljóst að leikurinn fer fram. ÍBV sigraði Þór í fyrri umferðinni fyrir norðan 0:2. Þar voru þeir Atli Heimisson og Andri Ólafsson á skotskónum.