Handbolti - Bjarnólfur aftur í ÍBV

23.júl.2008  10:47

Í morgun var gengið frá félagaskiptum Bjarnólfs Lárussonar úr KR í ÍBV. Bjarnólfur er Eyjamönnum af góðu kunnur enda lék hann lengi vel við góðan orðstír með ÍBV. Alls hefur Bjarnólfur leikið 72 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 13 mörk. Leitað var til Bjarnólfs þegar ljóst var að Italo Maciel myndi yfirgefa félagið og tók hann vel í ósk okkar um að koma til liðs við okkur í baráttunni um úrvalsdeildarsæti. Hann er kærkominn viðbót við leikmannahóp ÍBV og mun styrkja hið unga og efnilega lið mikið.