Í morgun var gengið frá félagaskiptum Bjarnólfs
Lárussonar úr KR í ÍBV. Bjarnólfur er
Eyjamönnum af góðu kunnur enda lék hann lengi vel við góðan orðstír með ÍBV. Alls hefur Bjarnólfur leikið 72 leiki fyrir
félagið og skorað í þeim 13 mörk. Leitað var til Bjarnólfs þegar ljóst var að
Italo Maciel myndi yfirgefa félagið og
tók hann vel í ósk okkar um að koma til liðs við okkur í baráttunni um
úrvalsdeildarsæti. Hann er kærkominn
viðbót við leikmannahóp ÍBV og mun styrkja hið unga og efnilega lið mikið.