Fótbolti - Meistaraflokkur kvenna IBV-IR

21.júl.2008  12:05
Á miðvikudag kl. 20.00 mætast á Hásteinsvelli í meistaraflokki kvenna lið IBV og IR. IR vermir toppsæti deildarinnar. Liðin mættust í fyrri umferðinni á IR velli og þar sigruðu ÍR stúlkur 3-0. Nú þurfa eyjastúlkur að bretta upp ermar og sýna hvað í þeim býr. Þess má geta að 2.flokkur IBV vermir efsta sæti efstu deildar í Íslandsmótinu eftir frækinn sigur á Val á Valsvelli 4-2.