Fótbolti - Italo kveður

18.júl.2008  08:20

Það er nú ljóst að miðvallarleikmanninn snjalli Italo Jorge Maciel hefur leikið sinn síðasta leik fyrir ÍBV í ár. Alvarleg veikindi eru í fjölskyldu hans heima í Brasilíu og hugur hans er þar. ÍBV gaf Italo frí í hálfan mánuð fyrr í sumar og gaf honum ferð til Brasilíu til að heimsækja systir sína en hún berst við krabbamein.

Liðsfélagarnir gáfu honum leikmannasjóðinn og bættu í hann fyrir þá ferð. Þó það sé sárt fyrir ÍBV að missa svo sterkan leikmann hljóta allir að skilja hversu erfitt er að geta ekki veitt fjölskyldu sinni stuðning þegar mest þarf á að halda. Um leið og við þökkum hans framlag til félagsins í ár óskum við Italo og fjölskyldu hans góðs bata og vonumst til að sjá hann í ÍBV búningnum næsta sumar.

Leikmenn, þjálfarar og knattspyrnuráð ÍBV