Fótbolti - Brekkustólarnir eru komnir aftur.

17.júl.2008  17:09
Brekkustólarnir frábæru eru komnir aftur fyrir þjóðhátíð. Stólarnir seldust upp í fyrra, en nú er komin ný sending. Því miður hafa gengismál sett nokkuð strik í reikninginn, og innkaupsverðið hefir hækkað mikið. Því hefir verið mætt að nokkru leyti með lægri álagningu bæði frá umboðsmönnum og sölufólki ÍBV 5. fl. kvenna, sem sér um söluna. Verðið er 2200 kr. fyrir hvern stól. Sölukrakkar og foreldrar munu ganga í hús á næstunni, og bjóða stólana til kaups. Ef einhver afgangur verður munu þeir verða til sölu hjá Axel Ó og í sölubás á þjóðhátíð.