Fótbolti - Alex hættur hjá ÍBV

07.júl.2008  14:04

Stjórn ÍBV og Alex Cerdeira leikmaður félagsins hafa komist að samkomulagi um starfslok leikmannsins. Alex hefur átt við þrálát meiðsli að stríða síðan um miðjan mars og ljóst að enn er langt í land með að hann verði tilbúinn í slaginn. Því þótti það besta lausnin, bæði fyrir leikmanninn sjálfan og ÍBV að hann yfirgefi félagið og haldi aftur til heimalandsins.

Alex spilaði einn leik fyrir félagið. ÍBV þakkar Alex fyrir framlag sitt til félagsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.