Fótbolti - Stórkostlegur árangur 5.flokks karla á N1 mótinu.

05.júl.2008  19:52

5.flokkur karla náði frábærum árángri á N1 mótinu í knattspyrnu á Akureyri um helgina. ÍBV komst í 8 liða úrslit í flokki A,B,C og í D liða. A-liðið tapaði sínum leik gegn KR 2-1 en B,C og D liðin unnu sína leiki og léku því um sæti 1-4. Öll liðin töpuðu undanúrslitaleiknum. B og C liðin í vítaspyrnukeppni en D liðið 3-1. Því var lokastaðan í mótinu þannig:

A liðið. 7 sæti

B liðið 4 sæti

C liðið 4 sæti

D liðið 3 sæti

E liðið 22 sæti

Að auki var Elliði Ívarsson velinn besti markvörðurinn í flokki D-liða.

Það er afrek út af fyrir sig að félag frá svo fámennu bæjarfélagi skuli senda 5 lið til keppni í mót eins og þetta en strákarnir gerðu gott betur en að mæta og unnu eftirsóttasta bikarinn í mótinu en það er N1 bikarinn sem er fyrir besta samanlagða árangur allra liða.

Strákarnir stóðu sig ákaflega vel innan vallar sem utan og voru ÍBV og Vestmannaeyjum til sóma í alla staði. Strákarnir koma með beinu leiguflugi frá Akureyri kl 21:00 í kvöld.