Fótbolti - Fjölnir-ÍBV í 16 liða úrslitum

30.jún.2008  22:49

Á miðvikudaginn n.k. munu eyjamenn skella sér upp á fastalandið til að spila gegn Fjölnismönnum í 16 liða úrslitum Visabikarsins. Fjölnismenn eru í ár að spila í fyrsta skiptið í efstu deild og byrjað mjög og eru í 5. sæti eftir 9 leiki. Eyjamenn eru sem fyrr í efsta sæti í 1.deild en þeir lögðu Njarðvíkinga um helgina og því er von á hörku leik.

Leikurinn hefst kl. 19.15 og hvetjum við alla eyjamenn til að fjölmenna á leikinn og hvetja sína menn áfram.