Fótbolti - Shellmót í fullum gangi

27.jún.2008  09:35
Mikið fjör er í gangi þessa dagana hér í eyjum því eins og flestir vita þá er byrjaði Shellmótið á fimmtudagsmorgun. 800-900 peyjar eru á mótinu og því gríðarlegt fjör á svæðinu. Smá væta var í gær en í dag stefnir allt í að það verði þurrt og gott veður. Svo lýkur deginum með leik ÍBV og Njarðvík í 1.deild karla en eyjamenn eru sem fyrr í efsta sæti og eru staðráðnir að halda því.