Fótbolti - Leikur í VISA-bikarnum í kvöld

18.jún.2008  14:37

Í kvöld koma Leiknismenn í heimsókn og spila við eyjamenn í 32. liða úrslitum Visa-bikarsins. Ljóst er að um hörkuleik verður að ræða en Leiknismenn komu hingað í fyrstu umferð en sá leikur endaði með sigri heimamanna 2-0. Hefst leikurinn kl. 19.15 við Hásteinsvöll.
Hvetjum við alla til að mæta á leikinn og sýna heimamönnum stuðning.