Handbolti - Pæjumót TM, undirbúningur á lokastigi.

10.jún.2008  16:24

Það verður fjör í Eyjum um helgina. Allt er nú að verða klárt fyrir Pæjumót TM, sem hefst á fimmtudag. Liðin fara að streyma til Eyja á morgun. Mjög góð þátttaka er á mótinu í ár. Við hlökkum til að hitta allar stelpurnar og þeirra fylgifiska. Fjölmargir fararstjórar og aðstoðarmenn munu fylgja liðunum til Eyja. Einnig er mikið um foreldra, sem fylgja stelpunum í blíðviðrið, sem verður alla helgina í Vestmannaeyjum, ef marka má veðurspá.