Handbolti - ÍBV-ÍR í Visabikarnum á morgun

02.jún.2008  18:22

Á morgun, þriðjudag, koma ÍR-ingar til okkar í heimsókn. Gengi ÍR hefur verið mjög gott í byrjun móts í 2.deildinni. Þeir hafa spilað 3 leiki og unnið þá alla, því verður um hörkuviðureign að ræða. Þjálfari ÍR er enginn annar en Guðlaugur Baldursson en eins og flestir vita þá þjálfaði hann ÍBV fyrir nokkrum dögum.

Leikurinn hefst klukkan 20.00 og hvetjum við alla til að mæta og styðja heimamenn til sigurs.