Fótbolti - Árlegi þrifdagur Toyota

27.maí.2008  11:32
“Hversu margir Toyota bílar geta verið á einni eyju eiginlega?”
heyrðist spurt þegar meistaraflokkur karla mætti hér við Týsheimilið á laugardaginn í blíðskaparveðri til að láta gott af sér leiða fyrir aðal styrktaraðila knattspyrnudeildarinnar, Toyota.
Létu eigendur rétt yfir 130 bíla sjá sig til að verða sér út um frían þvott á bílnum sínum og að þiggja léttar grill veitingar í boði Toyota. Fannst mönnum þetta framtak Toyota manna, sem laumuðu smá glaðning inn í hvern bíl sem var þrifinn koma mjög vel út. Og er greinilegt að sölutölur Toyota hér í eyjum líta mjög vel út miðað við þann fjölda bíla sem voru þrifnir.