Fótbolti - Hermann enskur bikarmeistari

21.maí.2008  15:46
Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson leikmaður Portsmouth, var eins og alkunnugt er enskur bikarmeistari á laugardaginn. Hermann er fyrsti íslendingurinn sem verður enskur bikarmeistari og er þetta glæsilegur árangur á annars frábærum ferli. Óskum við Hermanni til hamingju með þennan flotta árangur.