Handbolti - Lokahóf yngri flokka ÍBV í handbolta

13.maí.2008  15:48

Lokahóf handbolta yngri flokka verður haldið miðvikudaginn 14. maí 2008 kl. 16:00 í Týsheimilinu. Krakkar sem hafa verið að æfa handbolta í vetur og eru á aldrinum 5 til 14 ára eða krakkar frá 1. - 8. bekk eiga að mæta. Það verður verðlaunahafhending, grillaðar pylsur og óvænt skemmtiatriði.

Hlökkum til að sjá ykkur.
Unglingaráð