Fótbolti - Fyrsti leikur sumarsins í dag

12.maí.2008  11:35

Í dag verður fyrsti leikur sumarsins og eru það Leiknismenn úr Breiðholtinu. Verður leikurinn kl. 17.00 á Hásteinsvelli. Í spá fyrirliða og þjálfara á fotbolti.net var eyjamönnum spáð öðru sæti og þar með úrvalsdeildarsæti en Leiknismönnum spáð 7.sæti.

Eitthvað er meiðsl hjá ÍBV en Bjarni Hólm, Alex Cerdeira og Yngvi Borgþórs verða ekki klárir fyrir þennan fyrsta leik. Aðrir ættu að vera tilbúnir í slaginn. Við hvetjum alla eyjamenn að mæta á leikinn og styðja sína menn.