Handbolti - Uppselt á Pæjumót TM.

08.maí.2008  14:19
Alls fimmtán félög eru búin að skrá sig í mótið, nú síðast var Grindavík að bætast í hópinn. Mjög ánægjuleg þróun er að eiga sér stað varðandi Pæjumót TM. Kvennaknattspyrnan virðist vera að eflast og er það vel. Við hjá ÍBV Íþróttafélagi hlökkum til að takast á við aukin verkefni í sumar. Bæði stóru mótin Pæjumót TM og Shellmót eru að fá aukna aðsókn í sumar, og mikil eftirspurn er eftir Þjóðhátíðinni, sem virðist ætla að verða slá í gegn sem aldrei fyrr.