Fótbolti - Luka með fyrirlestur fyrir leikmenn og þjálfara ÍBV.

05.maí.2008  22:05

Luka Kostic landsliðsþjálfari U-17 og U-21 heldur fyrirlestur fyrir leikmenn 2 og 3ja flokks karla og kvenna í knattspyrnu. Umræðuefnið eru einstaklingsæfingar og fleira. Allir knattspyrnuþjálfarar ÍBV eru einnig hvattir til að mæta á fundinn sem er á miðvikudag kl 17:30 í Týsheimilinu.

Luka kom þrisvar sinnum á síðasta ári til Eyja og hélt fyrirlestra og sýnikennslur fyrir knattspyrnuþjálfara ÍBV. Þetta framtak KSÍ er til fyrirmyndar og þakkar ÍBV fyrir þessar heimsóknir.