Fótbolti - ÍBV leikur gegn ÍA í Mýrdal á morgun.

30.apr.2008  14:57

ÍBV leikur síðasta æfingaleik sinn fyrir Íslandsmótið á morgun 1.maí. Leikurinn er gegn ÍA og átti upphaflega að leikast í Eyjum en þar sem vellirnir eru ekki tilbúnir var ákveðið að flytja hann til Víkur í Mýrdal.

Leikurinn hefst kl 14:00 og er gott innlegg í 1sta maí dagskrána í Vík. Viljum við hjá ÍBV þakka þeim Víkverjum fyrir lánið á aðstöðunni. Skagamenn hafa á að skipa mjög sterku liði um þessar mundir og verður það verðugt verkefni fyrir ÍBV að eiga við þá á morgun.