Handbolti - Liðið smollið saman

12.apr.2008  19:01

Meistaraflokkur ÍBV ætlar greinilega að enda tímabilið með reisn. Liðið sigraði Fram á útivelli fyrir skömmu. Átti síðan góðan leik hér heima gegn meisturunum, Haukum Þar sem Haukarnir þurftu að hafa mikið fyrir sigrinum. Í dag léku þeir við Stjörnuna, sem þeir unnu hér heima á eftirminnilegan hátt.

Það var engin breyting á okkar strákar stóðu sig vel og voru með góða stöðu 25-23, en þá skoruðu Stjörnumenn 3 í röð. En Sergey jafnaði fyrir okkur í lokin og lokastaðan varð 26-26.

Það voru allir að standa sig vel í dag, en ef það á að hrósa einhverjum þá væru það hornamennirnir Leifur og Vignir. Vignir sem er enn í 3.flokki skoraði 4 mörk.