Fótbolti - Gústi og Siggi mættir á klakann

11.apr.2008  00:22

Þeir félagar Andrew Mwesigva (Siggi) og Augustine N´sumba (Gústi) mættu til Eyja með skemmtisnekkjunni Herjólfi í gærkvöldi. Eftir langa bið og langt ferðalag eru þeir loks mættir með bros á vör.

Upphaflega áætlunin var að þeir kæmu til Eyja í febrúar en tafir vegna vegabréfsáritunar olli því að þeir komust ekki fyrr en nú. Þeir misstu þar af leiðandi m.a. af æfingaferð liðsins til Tyrklands. Andy er að koma hingað í sitt þriðja tímabil en N´sumba sitt annað. Við bjóðum þessa viðkunnarlegu kumpána velkomna.