Handbolti - Gintaras tók lokapróf í hagfræði

11.apr.2008  15:36

Þjálfarinn okkar í handboltanum situr ekki auðum höndum. Auk þess að þjálfa mfl. 2.fl. og unglingaflokk karla í handbolta, hefir Gintaras Savukynas lært í vetur undir lokapróf við Háskólann í Kaunas, heimabæ sínum. Um síðustu helgi skellti kappinn sér á heimaslóð og tók lokapróf með ágætiseinkunn. Hann mun því útskrifast, sem hagfræðingur í vor. Við hjá ÍBV Íþróttafélagi óskum Gintaras til hamingju með þennan stóran áfanga.