Fótbolti - Jafntefli í fjórða og síðasta leik í Tyrklandi

07.apr.2008  13:32

•

Næsti leikur ÍBV er gegn úrvalsdeildarliði Grindavíkur í deildarbikarnum um næstu helgi. 

Leikmenn ÍBV í meistaraflokki karla léku sinn fjórða æfingaleik á átta dögum í Tyrklandi í gær. Mótherjarnir vor Víkingar frá Ólafsvík. Leiknum lyktaði með 2-2 jafntefli. Víkingar komust í 2-0 en Eyjamenn jöfnuðu í síðari hálfleik. Mörkin skoruðu Egill Jóhannsson og Ingi Rafn Ingibergsson. Síðasta æfing liðsins var svo kl 09:00 í morgun og liðið mun fljúga heim í kvöld. Þessir 9 dagar hafa verið vel heppnaðir í alla staði og vilja leikmenn og fararstjórar ÍBV þakka Úrval Útsýn fyrir góða æfingaferð. Fyrir utan 4 leiki hefur liðið æft