Fótbolti - Vel heppnuð Spánarferð

02.apr.2008  10:24
Dagana 18-25.Mars fór 34.manna hópur 2.og 3.flokks kvenna í knattspyrnu til Spánar til æfinga og keppni. Við tókum þátt í Costa Blanca cup þar sem ÍBV tefldi fram 3.liðum og náðu tvö þeirra 2.sæti í sínum riðli og 3ja liðið varð í 4.sæti í riðlinum. Æft var við mjög góðar aðstæður. Ferðin var sett upp með þrenn markmið þ.e að fá góða leiki, góða æfingaaðstöðu og að skemmtanagildi yrði ríkjandi. Allt gekk þetta vel eftir og voru leikmenn jafnt sem fararstjórn ánægð hvernig til tókst.