Handbolti - Henrik Bödker til Hattar

31.mar.2008  16:49

Henrik sem lék með ÍBV seinni hluta síðasta tímabilsins hefur ákveðið að leika með Egilstaðarliðinu þetta tímabil. Þetta er mikill fengur fyrir annarar deildar liðið því Henrik er ekki aðeins góður markvörður heldur einnig frábær karakter. Hattarmenn fengu góð meðmæli frá Heimi þjálfara um Henrik en þess má geta að Heimir var fyrirliði Hattar fyrir "nokkrum" kílóum síðan. Við óskum Hetti og Henrik góðs gengis í sumar.