Handbolti - Heiða Ingólfsdóttir valin í 20 ára landsliðshópinn

11.mar.2008  22:42
Heiða Ingólfsdóttir hefur verið valin í æfingahóp U20 ára landsliðs kvenna sem mun spila hér á Íslandi um páskana í forkeppni fyrir HM 20 ára sem verður í Makedóníu í sumar. Æfingar munu verða um næstu helgi og í vikunni á eftir byrjar forkeppnin í H.K húsinu vonandi fáum við að sjá þennan framtíðarmarkmann okkar spila fyrir Íslands hönd. Við óskum Heiðu til hamingju með þennan áfanga, en þess má geta að Heiða er aðeins á sautjánda ári, og er því einnig í 18 ára landsliðinu..