Handbolti - Herrakvöld ÍBV 8.mars

29.feb.2008  15:33

Árlegt Herrakvöld ÍBV verður haldið í Höllinni laugardaginn 8.mars. Kári Vigfússon yfirbryti mun töfra fram veisluhlaðborð kjöt- og fiskrétta. Margt verður til skemmtunar, ber þar helst að nefna sjálfan Sverri Stormsker. Skráning er í höndum Viktors Ragnarssonar í síma 8964791. Nú þegar hafa 130 skráð sig. Vertu maður með mönnum og njóttu kvöldsins með okkur!