Fótbolti - Ingi Rafn með þrennu

25.feb.2008  09:44

- ÍBV mætti Reyni sandgerði
Í gær mætti ÍBV, Reyni sandgerði í Reykjaneshöllinni. ÍBV lenti undir 1-0 snemma í leiknum en Ingi Rafn opnaði markareikninginn fljótlega eftir það og jafnaði þar með metin. Alex og Ingvi áttu svo flott samspil sem endaði með marki frá Ingva og staðan því orðin 1-2. Það var svo Ingi rafn sem skoraði glæsilegt mark utan af velli sem kom okkur í 1-3. Ingi Rafn lokaði svo leiknum með sínu þriðja marki og lokastaðan því 1-4 fyrir okkur.