Handbolti - Sigruðu Val og eru komnir í undanúrslit

10.feb.2008  18:45

Unglingaflokkur karla sigraði Val á útivelli 30-29 í 8 liða úrslitum Bikarkeppni HSÍ. Þetta var hörkuleikur sem Valsmenn leiddu framan af, en okkar menn náðu að komast yfir þegar um 10 mínútur voru eftir. Góð markvarsla Hauks Jónssonar gerði gæfumuninn í lokin, en annars var þetta sigur liðsheildarinnar.