Handbolti - Góður liðsauki.

29.jan.2008  11:12

ÍBV hefur fengið góðan liðsauka í handboltann. Eyjamaðurinn Benedikt Steingrímsson hefur gengið til liðs við okkur. Hann er í námi í Reykjavík og hefur verið að leika með Víkingi. En hann ákvað að nota félagaskiptagluggann sem er opinn til mánaðrmóta og skipta yfir.

Benedikt er miðjumaður. Hann er sterkur og með góða snerpu. Hann á eftir að auka breidd liðsins og ánægjulegt að sjá að menn eru með ÍBV hjartað á réttum stað.