Fótbolti - 5.flokkur karla í úrslitakeppni Futsal

21.jan.2008  09:06

5.flokkur karla vann sinn riðil á Íslandsmótinu í innanhússknattspyrnu (Futsal). Strákarnir unnu KR 2-0, Selfoss 2-0 og Hamar 6-0 en gerðu jafntefli við Ægi 0-0. Drengirnir skoruðu sem sagt 10 mörk en fengu ekkert á sig. Mörkin skoruðu: Kiddi 5, Hallgrímur 4 og Guðmundur Tómas 1.

Strákarnir notuðu ferðina og tóku þátt í vinamóti Breiðabliks í leiðinni. Þar enduðu A og B liðin í 5.sæti en C-liðið okkar gerði sér lítið fyrir og vann mótið.