Fótbolti - Þrír Brasilíumenn á reynslu

11.jan.2008  13:39

Þrír brasilískir leikmenn munu koma til ÍBV á reynslu í næstu viku en um er að ræða tvo miðjumenn og einn framherja.

Leikmennirnir hafa leikið í heimalandi sínu síðustu ár en þeir hafa einnig verið á mála hjá evrópskum liðum hluta af ferlinum. Allir leikmennirnir eru með vegabréf frá Portúgal.

Þeir koma hingað til ÍBV á reynslu fyrir tilstuðlan Renaldo Rapheal Christians en hann er þjálfari 2.flokks félagsins og markmansþjálfari.