Handbolti - 60 manns söfnuðu dósum.

10.jan.2008  12:00
Dósasöfnun handboltafólks á vegum ÍBV fór fram s.l. þriðjudag. Mjög góð mæting var og gekk söfnunin mjög vel. Bæði strákar og stelpur á öllum aldri gengu um bæinn og var alls staðar vel tekið. Svona framtak er félaginu til mikils sóma. Þetta eflir félagsandann, og það er einmitt það, sem skiptir félagið svo miklu máli. ÍBV Íþróttafélag er öflugt félag, sem stendur fyrir fjölbreyttri starfsemi í bæjarfélaginu. Handboltafólk er þakklátt öllum þeim fjölmörgu, sem lögðu félaginu lið í söfnuninni.