Fótbolti - Þrjár fótboltastúlkur valdar til æfinga með landsliði.

08.jan.2008  11:47

Þórhildur Ólafsdóttir hefur verið valin til að æfa með U-19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu nú um helgina. Þetta er í annað sinn sem Þórhildur er valin. Þá voru þær Kristín Erna Sigurlásdóttir og Birgitta Valdemarsdóttir verið valdar til að æfa með U-17 ára landsliðinu. Þetta er í þriðja sinn sem Birgitta fer og í annað sinn sem Kristín Erna er valin.

ÍBV óskar stúlkunum til hamingju með þennan árangur.