Handbolti - Glæsileg þrettándahátíð.

07.jan.2008  10:08
ÍBV Íþróttafélag vill senda öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum, sem lögðu hart að sér við framkvæmd hinnar árlegu Þrettándagleði, innilegt þakklæti fyrir fórnfúst starf í þágu Vestmannaeyja. Það er ekki hægt að meta til fjár þá miklu vinnu, sem þetta fólk leggur af mörkum í þágu bæjarbúa. Vestmannaeyjasamfélagið væri ekki svipur hjá sjón, ef ekki væri hér svo öflugt félag, sem ÍBV Íþróttafélag vissulega er. Félagið stendur fyrir flestum alvöru viðburðum, sem hér fara fram árið um kring. Vestmannaeyingar eru því ekki að ósekju, stoltir af sinni öflugu íþróttahreyfingu. ÍBV Íþróttafélag á í nokkrum fjárhagsörðugleikum um þessar mundir, það er einlæg von stjórnenda félagsins, að bæjarbúar taki höndum saman og styðji félagið í gegnum brimgarðinn. Félagið hefir sýnt og sannað í gegnum árin, að öflugt ÍBV Íþróttafélag er einn af máttastólpum Vestmannaeyja.