Handbolti - Til hamingju Ísland !

28.des.2007  20:19
Besti íþróttamaður Íslands árið 2007 er enginn annar en Vestmannaeyingurinn Margrét Lára Viðarsdóttir. Eyjamenn samgleðjast íslensku þjóðinni á þessum tímamótum. Kjörið kemur varla nokkrum á óvart. Margrét er yfirburðaknattspyrnukona, framkoma hennar í hvívetna er til fyrirmyndar. Til hamingju Margrét Lára og fjölskylda. Til hamingju Ísland.