Handbolti - Unglingaflokkur kvenna spilar gegn HK í dag og á morgun

18.des.2007  11:41

Í dag og á morgun spilar Unglingaflokkur kvenna tvo leiki gegn HK en HK-liðið þjálfar enginn annar en Erlingur nokkur Richardsson sem allir handboltaáhugamenn í Eyjum ættu að kannast við. Eru þessir leikir liðir í Íslandsmótinu og því nauðsynlegt að fjölmenna og styðja Unni og stúlkurnar hennar. Leikurinn í dag er kl. 19.00 og leikurinn á morgun er kl. 12.00 og fara báðir leikirnir fram í Gamla salnum.