Handbolti - Afreksfólk frá Vestmannaeyjum

18.des.2007  10:00

Eyjamenn eru stoltir af knattspyrnufólki ársins 2007. Það er engin tilviljun, að Margrét Lára og Hermann hljóti þessa frábæru viðurkenningu. Bæði eru þau uppalinn í Vestmannaeyjum og gerðu garðinn frægan með ÍBV. Það hefir verið ánægjulegt fyrir okkur Eyjafólk, að fylgjast með þessu frábæra íþróttafólki þróa sína einstöku hæfileika á íþróttasviðinu. Þó bæði Margrét Lára og Hermann séu eins og viðurkenningin bendir til, afburðaíþróttafólk, eru þau einnig miklir leiðtogar og fyrirmyndir.



Margrét Lára Viðarsdóttir og Hermann Hreiðarsson, við erum stolt af ykkur og afrekum ykkar!