Handbolti - Frábært framtak handboltapeyja

28.nóv.2007  13:42
Strákarnir í mfl karla hafa undanfarið verið á kafi í vinnu við að hreinsa brunarústir. Þeir tóku verkið að sér til að safna í leikmannasjóð. Sjóðurinn er notaður í t.d. æfingaferðir og ýmislegt annað utan hefðbundinna verkefna flokksins. Peyjarnir hafa nú afhent handboltadeildinni 250.000 af þessum peningum til reksturs deildarinnar. Frábært framtak hjá strákunum, sem vilja með þessu ítreka, að þrátt fyrir að félagið sé ekki á meðal þeirra allra stærstu, séum við gott félag með hjartað á réttum stað. Þannig viljum við einmitt hafa það Eyjamenn.

Hafið þökk fyrir handboltapeyjar.