Handbolti - Frábær handboltadagur hjá ÍBV

24.nóv.2007  18:43
Með viljann að vopni.

Séra Kristján bauð handboltastrákunum til kirkju daginn fyrir leik IBV gegn Aftureldingu, og gaf þeim andlega næringu. Sú orka leystist úr læðingi í leiknum í dag. Með gífurlegri baráttu, samheldni og leikgleði tókst ÍBV liðinu að snúa við taflinu eftir erfiða byrjun. Yngri flokkarnir stóðu sig einnig frábærlega í dag. 6.fl. c, bæði stúlkna og drengja sigraði í 1. deild á fjölliðamóti í RVK., og fjórði fl.dr. sigraði Viking örugglega hér heima. Unglingafl. drengja spilaði góðan leik gegn Val í morgun en tapaði m. 4 marka mun.

Byggt á heimasíðu maggabraga.