Fótbolti - Albert Sævarsson semur við ÍBV

22.nóv.2007  16:09

Albert Sævarsson sem er 34 ára lék í sumar með liði Njarðvíkinga í fyrstu deildinni. Hann spilaði alla leiki liðsins og skoraði að auki 2 mörk fyrir þá. Albert hefur lengst af leikið með Grindavík en einnig með B68 í tvö ár í Færeyjum.

Albert Sævarsson mun mæta á skerið fljótlega eftir áramót og hefja æfingar með sínum nýju félögum.

Við bjóðum Albert velkominn í ÍBV og væntumst mikils af honum næstu sumur.

Hrafni Davíðssyni eru í leiðinni þökkuð góð ár með félaginu og ÍBV óskar honum velgengni í framtíðinni.