Fótbolti - Nýtt knattspyrnuráð

21.nóv.2007  19:05
Nýtt knattspyrnuráð hefur tekið til starfa. Ráðið skipa: Bjarki Guðnason,
Sigurður Smári Benónýsson, Magnús Steindórsson, Huginn Helgason, Sigurjón
Birgisson, Jóhann Guðmundsson, Sigursveinn Þórðarson og Sigurður Ingi Ingason.

Hér eru hörku drengir á ferð sem eru strax farnir að taka til hendinni og
búast má við fréttum á næstunni í leikmanna- og öðrum málum.

Fráfarandi knattspyrnuráði eru þökkuð góð störf fyrir deildina og ÍBV. Þeir
Viðar Elíasson, Gísli Hjartarson, Jóhann Georgsson, Sveinn Sveinsson, Ágúst
Einarsson og Ástþór Jónsson. Þeir skila rekstri deildarinnar í góðu standi og hafa
boðist til að aðstoða nýju stjórnina eins og þurfa þykir.